Hvern viltu sem forseta?

Ég er búinn að vera með skoðanakönnun um kaup Kínverjans Nupo á Grímsstöðum ansi lengi. Það kom mér á óvart hversu margir voru/eru tortryggnir í hans garð. Niðurstaðan úr minni skoðanakönnun er nokk í samræmi við aðrar.

Spurt er

Á Huang Nupo að fá að kaupa Grímsstaði á Fjöllum?

 

31,9%
Nei 68,1%
329 hafa svarað
Nú set ég inn nýja skoðanakönnun, endilega takið þátt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við geturm þegar fagnað því að losna við Ólaf Ragnar og Dorrit frá Bessastöðum. “Good riddance”. Með greindar og vel menntaðar konur eins og  Herdísi Þorgeirsdóttur og Þóru Arnórsdóttur í framboði á kallinn lítinn sjans. Og hann minnkar í hvert skipti sem prelátinn Jón Valur krotar pistil Óla til dýrðar. "Nýja Ísland" hefst því í sumar með nýjum forseta, með forseta sem íslenska þjóðin verðskuldar, loksins, eftir 16 ár. Grísinn er hafður að háði og spotti erlendis og er orðinn alvarlegt “embarrassment” fyrir þjóðina. Nú er mál að linni.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 6.4.2012 kl. 09:59

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sumir elska að hata Ólaf

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.4.2012 kl. 10:10

3 identicon

Svakalega kemur Hannes sterkur inn.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 6.4.2012 kl. 11:14

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

það er hægt að svindla á þessu

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.4.2012 kl. 11:50

5 identicon

Búinn að kjósa hjá þér manninn sem  hlustaði á fólkið þegar að vesöl ríkisstjórn landsins  ætlaði að neyða landann til að borga fyrir Icesave, innistæðureikninga sem almenningur vissi ekki einu sinni að væru til fyrr en að ríkisstjórnin skellti þessum kröfum   eins og blautri tusku í smettið á okkur. 

Það getur svo sem vel verið að konurnar séu ágætar en nóg er að borga með tveimur Forsetum þó svo við bætum ekki þeim þriðja við.

Gleðilega Páskahátíð 

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 6.4.2012 kl. 17:17

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir það. Við þurfum ekki að velkjast í vafa um hvað Þóra samfylkingarkona hefði gert... nefnilega skrifað undir ósómann

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.4.2012 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband