Það er farið seinna af stað á Austurlandi

Þegar ég vann við snjóruðninga og hálkuvarnir hjá Vegagerð ríkisins á Austurlandi á árunum 2001-2005, var þjónustusvæði mitt frá Reyðarfirði til Egilsstaða og þaðan til Norðfjarðar. Vinnutíminn byrjaði á virkum dögum kl. 05.00 og ætlast til að búið væri að ryðja og/eða hálkuverja þessa 110 km. leið kl. 07.00. Um helgar var þessi tími frá kl. 6-8.

Þess má geta fyrir ókunnuga að fara þarf yfir tvo erfiða fjallvegi á þessari leið, Fagradal og Oddsskarð.

Í dag sér verktaki um þessa þjónustu og svo virðist sem hann hefji vinnu klukkustund síðar og jafnvel seinna en það í mörgum tilfellum, sérstaklega um helgar. Það er skrítið í ljósi þess að síðan ég vann við þetta, hefur nýr 900 manna vinnustaður orðið til milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar.

Mikil umferð er að og frá álverinu á morgnanna frá nærliggjandi byggðarkjörnum milli kl. 7 og 8 á morgnanna og á þeim tíma er hálkuvörnin ekki enn farin að virka að gagni og stundum um helgar ekki einu sinni hafin.

Mér finnst afar sérkennilegt ef kröfurnar varðandi vetrarþjónustu hafi minnkað eftir að álverið kom, því umferðin hefur auðvitað margfaldast á þessum tíma.

31_3_2010_016

Hér er snjóblásari á ferð í Oddsskarði ( http://www.geirinn.is )


mbl.is Glerhálka veldur vanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bíllinn sem mokar dalinn fer klukkan sex og eitthvað seinna um helgar,

annars er hæagt að skoða snjómoksturreglur  http://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/leidbeiningar-og-stadlar/vetrarthjonusta/vinnureglur//e26a25a2d767b730002571110057d963?OpenDocument

Örlygur (IP-tala skráð) 22.12.2011 kl. 17:25

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta, Örlygur. Af þessu má sjá að verktakinn er ekki að standa sig.

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.12.2011 kl. 20:02

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Samkvæmt stölunum á að vera búið að opna 06.30 virka daga og 07.30 um helgar. Svo er ekki raunin.

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.12.2011 kl. 20:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband