Allar hagkvæmnistilraunir verða skattlagðar aukalega

Í olíukostnaðarbrjálæðinu sem dynur yfir þjóðina, í viðbót við almenna kreppu og minnkandi kaupmátt, þá er horft til annarra og hagkvæmari og jafnvel umhverfisvænni leiða til að fullnægja orkuþörfinni.

Ríkisstjórnin á svar við þessari ósvífni, sem og öðrum sem miða að ráðdeild og sparnaði. Hún eykur skattlagninguna til að koma í veg fyrir þessa viðleitni.

Sýnt hefur verið fram á að rafmagn, vetni og metan á bílaflota landsins, sé raunhæfur kostur því stofnkostaður bíleigenda vegna þessara orkugjafa skili sér til baka.

Ég er nokkuð viss um að afturkippur verði í þessari framþróun þegar fólk áttar sig á að öll hagkvæmnisviðleitni er tilgangslaus. Vinstri stjórnin leggur einfaldlega aukaskatt á ráðdeildina.


mbl.is Steinolían verður skattlögð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Landfari

Það er út í hött nafni að líkja notkun á steinolíu við metan, rafmagn og vetni.

Steinolína er innflutt og er aðeins ódýrari af því hún ber ekki þau vegagjöld sem lögð eru á disel og bensín.

Það  að ekki eru veggjöld (eldsneytisgjald) á steinolíu þýðir bara að það þarf að hækka þessi gjöld á bensín og dísil ef notkun á steinolíu eykst eins og tölur sýna. Þá innst mér sanngjarnara að setja líka gjald á steinolíuna. 

Landfari, 3.11.2011 kl. 11:36

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það hafa verið spekúlasjónir um það hvort  það borgi sig fyrir almenning að láta breyta bílum sínum fyrir aðra ódýrari og umhverfisvænni orkugjafa.

Margir hafa efasemdir um það vegna þess að hagkvæmnin muni hverfa þegar ríkisstjórnin áttar sig á "tekjutapinu" og muni því hækka álögur á þessa orkugjafa, þannig að verðið verður svipað og á olíunni.

Það var nú eiginlega "pointið" með færslunni.

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.11.2011 kl. 11:57

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þessi svokölluðu  "vegagjöld" eru auk þess rangnefni. Þetta er "bara" skattur og tekjulind fyrir ríkissjóð.

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.11.2011 kl. 11:59

4 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Sannarlega er það svo að "náttúruvernd" á íslendi er sjaldnast til að vernda náttúruna heldur mun frekar til að geta lagt frekari og hærri skatta á fólkið í landinu.

Raunin er sú að ef allir skiptu í rafmagn eða metan á morgun myndu skattarnir koma með þar sem að áfram verður að fá peninga í kassann.

Óskar Guðmundsson, 3.11.2011 kl. 13:22

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er ákveðin þversögn í því hjá vinstriflokkunum, að hvetja til umhverfisverndar en skattleggja hana svo þannig að fólk fælist frá henni.

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.11.2011 kl. 13:42

6 identicon

vetnis framleyðsla i bilum sparar 30%  elsneyti  hef profað á hilux disel eyðslan fór úr 13  í 7 á hundraði og minni mengun lika

bpm (IP-tala skráð) 3.11.2011 kl. 20:18

7 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þeir (ríkið) mun hirða þennan sparnað ... þó síðar verði.

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.11.2011 kl. 20:36

8 Smámynd: Landfari

Ég er sammála þér i þessu enda var fyrrverandi samgögumálaráðherra  að tala um að rukka eftir notkun veganna með skynjurum á vegunum. Ég óttaðist nú að það kæmi til viðbótar eldsneytisgjöldunum en ekki ístaðin fyrir þau.

Landfari, 4.11.2011 kl. 01:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband