Refur á Reyðarfirði - myndband

Steinar Ágústsson (Denni), hefur alið tvo yrðlinga í sumar á heimili sínu inn í miðju þorpinu á Reyðarfirði. Nábúar Denna í götunni eru með íslenskar landnámshænur og voru þeir um tíma uggandi um hænsnin en nábýlið hefur ekki orðið til neinna vandræða.

Yrðlingarnir eru systur úr sama goti, önnur brún en hin hvít. Nýlega þurfti Denni að lóga þeirri brúnu, því eftir að kunningi hans kom eitt sinn í heimsókn með labrador hund sinn, þá rauk hundurinn í einhverjum gassagangi í brúnku, án þess þó að ætla að meiða hana. Lágfóta hvekktist svo við uppákomuna að hún hvarf af heimilinu í tvo daga, en kom svo aftur með skottið á milli lappanna.

Nokkrum dögum síðar kom kunninginn aftur, og aftur gerðist það sama, en þá var brúnku nóg boðið og hreiðraði um sig í garði í hjá konu nokkurri í annarri götu. Þegar konan varð var við brúnku, hringdi hún í ofboði í meindýraeyði og sagði honum að koma strax því það væri minkur í garðinum hjá sér!

Denni frétti af þessu og fór og náði í brúnku en þá vildi hún helst ekki vera lengur heima, alveg búin á taugum greyið. Undecided Denna hafði alltaf fundist sú brúna vera hálfgert skoffín á ýmsa lund. Hún var dálítið vansköpuð á framfótunum og ólíklegt að hún gæti spjarað sig úti í náttúrunni á eigin vegum. Það var því ekki nema eitt í stöðunni og það var lóga henni.

Hvíta systir hennar, Mjallhvít, er hins vegar yndisleg í alla staði, svipfríð og blíðleg og með augu sem bræða hjörtu þeirra sem í þau líta.

Til er fólk sem vill útrýma þessu úr íslenskri náttúru Errm... og svo eru aðrir sem vilja alfriða rebba. Millivegurinn er bestur í þessu sem öðru.

Hundarnir hans Denna og Mjallhvít eru bestu vinir. Magnað að horfa á þau leika sér saman í garðinum. Neðra videóið er um tveimur vikum eldra og hvíti liturinn á Mjallhvíti kemur betur fram með lækkandi sól.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 28.10.2011 kl. 17:49

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Draumalandið

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.10.2011 kl. 18:06

3 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Það má nú segja strákar mínir

Bergljót Gunnarsdóttir, 28.10.2011 kl. 18:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband