Eigendur tveggja eyðibýla eru andvígir vegi um Teigskóg

Bændur sem búa á þessu svæði eru ekki andvígir vegi um Teigskóg, en eigendur tveggja eyðibýla eru það!

Hvernig ætli standi á því? Hvar búa þessir eigendur í dag? Hverjir eru þeir?

Það er oft þannig að ef pínulítill minnihluti er andvígur framkvæmdum sem raska umhverfinu, þá er það blásið út og þar með er framkvæmdir orðnar "mjög umdeildar".

Það má vel vera að eigendur eyðibýlanna sjá meiri hagnað í því að búta Teigskóg í marga sumarbústaðareiti, heldur en að selja jarðirnar undir samgöngubætur fyrir almenning, en það er ömurlegt að þeir fái að gera það í nafni umhverfisverndar.


mbl.is Láglendisvegur er eina lausnin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband