Þetta er e.t.v. rétt?

Ekki styð ég einræðisherrann Gaddafi, svo því sé haldið til haga. En hvað vitum við um uppreisnarmennina? Fyrir hvað standa þeir?

Ég er ekki viss um að hrein lýðræðisást stjórni þeim öllum. Errm


mbl.is Árásir byggðar á misskilningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Ég er alveg sammála þér Gunnar

Kristbjörn Árnason, 20.3.2011 kl. 15:06

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sammála 100%

Axel Jóhann Hallgrímsson, 20.3.2011 kl. 16:43

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Og ég er að hugsa um að bætast í hópinn. Hvað vitum við eða skiljum ástand á þessum undarlegu slóðum og framandi.

Árni Gunnarsson, 20.3.2011 kl. 17:32

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Vesturveldum er nákvæmlega sama hvað eða hver tekur við af Gaddafi, lýðræði eða einræði, það eina sem skiptir þau máli er að olían liggi réttu megin veggjar.  Palestína væri fyrir löngu orðið frjáls og sjálfstæð, ættu þeir olíu fyrir þyrst vesturlöndin.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 20.3.2011 kl. 17:42

5 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Ég vil meina að hagsmunir Bandaríkjanna í þessu máli séu ekkert annað en olía.  Þeir eru ekki vanir að standa með almenningi víða um heim, nema því fylgi gullið svarta. Allt annað er yfirskin að mínu mati.

Bergljót Gunnarsdóttir, 20.3.2011 kl. 20:25

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég get eiginlega ekki annað en tekið undir með ykkur, þrátt fyrir að vera aðdáandi Bandaríkjanna að mörgu leyti.

-

Einnig er dómskerfið hjá þeim hálf óhugnanlegt. Nokkrar bíómyndir hafa gefið almenningi innsýn í þá hlið mála.

 Þar fer sigurvegari í mælskulist gjarna með sigur af hólmi í réttarhöldum. - Kviðdómendur stara í andakt sinni á stjörnuframkomu ungra lögfræðinga á framabraut, í leikrænum tilburðum þeirra, til þess að tryggja sigurinn.

-

Almenningur áttar sig ekki á brellunum.

Réttarmorð virðast hafa verið algeng, og hafa þá alfarið verið framkvæmd af lögfræðingum, fremri

Gunnar Th. Gunnarsson, 21.3.2011 kl. 04:13

7 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

.... fremri verjendunum..... átti þetta að vera.

Gunnar Th. Gunnarsson, 21.3.2011 kl. 04:14

8 identicon

Verð að vera sammála þeim sem hér skrifa að ofan að vissu leyti. Olían spilar væntanlega stórt hlutverk í hversu fljótt var brugðist við. Að mínu mati geta þjóðir heims þó ekki leift sér að sitja aðgerðalausar hjá þegar einræðisherrar beita hervaldi gegn almennum borgurum.

Ég myndi allavega vilja að alþjóðasamfélagið gripi inn í ef Jóka Sig, sigaði leiguhermönnum á mótmælendur á Austurvelli.

Hjalti Finnsson (IP-tala skráð) 21.3.2011 kl. 09:16

9 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Satt og rétt!

Bergljót Gunnarsdóttir, 21.3.2011 kl. 19:42

10 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Af hverju leyfa þjóðir heims sér að sitja aðgerðalausar áratugum saman í einu málinu en rjúka samstundis til í öðru hliðstæðu, Hjalti?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 22.3.2011 kl. 01:12

11 identicon

Axel það er einmitt það sem ég var að reyna að benda á. Ég var að benda á að mér finnst að þjóðir heims geti ekki leyft sér að sitja aðgerðarlausar hjá á meðan að einræðisherrar framkvæma þjóðarmorð. Mér finnst að það eigi að eiga jafnt við í olíulöndum sem öðrum. Mín tilgáta um hvers vegna var svo fljótt brugðist við í Lýbíu er þó sú að "ógnin" af flóttamönnum í tugþúsundatali yfir Miðjarðarhafið hafið verið aðalkveikjan.

Hjalti Finnsson (IP-tala skráð) 23.3.2011 kl. 15:09

12 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Hvað gerir Líbýu svona merkilegri en margar aðrar þjóðir sem eiga í illdeilum - annað en olían???!!!

Kveðja, Björn bóndi  

Sigurbjörn Friðriksson, 31.3.2011 kl. 17:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband