Er það hlutverk forsetans að boða fjármálaráðherra á sinn fund?

 Svona almennt séð, hélt ég að forsetinn væri ekki að boða stjórnmálamenn á einkafundi með sér, nema í stjórnarmyndunarviðræðum, þ.e.a.s. ef þær ganga erfiðlega og þegar einhverjar hamfarir eiga sér stað.

Steingrímur og forsetinn eru gamlir flokksfélagar og það er auðvitað eitthvað mikið að í sinni Steingríms, ef hann hefur ekki talað við Ólaf síðan hann vísaði Icesave II til þjóðarinnar. Það hljóta allir að sjá í hendi sér.

Það var gert að fjölmiðlamáli að Davíð og Ólafur töluðust ekki við eftir að sá síðarnefndi vísaði fjölmiðlalögunum til þjóðarinnar, en þeir tveir höfðu aldrei átt mjög gott skap saman. Errm

Fjölmiðlalögunum var aldrei vísað til þjóðarinnar af skiljanlegum ástæðum.  Þeir sem öllu hafa ráðið á fjölmiðlamarkaðinum síðan um aldamót, notuðu öll sín tæki og tól til þess að gera sjálfsagða breytingu á eignarhaldi fjölmiðla, tortryggilega. Þjóðaratkvæðagreiðslan var töpuð fyrirfram fyrir flutningsmenn lagabreytingarinnar.


mbl.is Icesave-málið ekki það stórt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband