Skoðanakönnun: meirihlutinn vill Steingrím á sakamannabekk

Í skoðanakönnun sem ég hef haft á blogginu að undanförnu, er spurt:

Á að draga Steingrím J. Sigfússon fyrir landsdóm, sem höfuð ábyrgðarmanns "Svavars-samningsins"?

76,2%
Nei 23,8%
294 hafa svarað

Niðurstaðan er afgerandi, ólíkt þeirri könnun sem ég gerði um hug fólks, varðandi Geir Haarde. Yfir 75% vilja Steingrím á sakamannabekk en 44% óskuðu hins sama fyrir Geir.

Ég bendi á nýja könnun hér til hliðar.


mbl.is Enn tekist á hjá VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Óskapleg heift er þetta að verða í þér Gunnar minn. Bara vegið á báðar hendur..

Lítið að gera í keyrslunni ?

hilmar jónsson, 11.1.2011 kl. 13:09

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Mér finnst þetta "heiftartal" koma úr harðri átt, Hilmar

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.1.2011 kl. 13:20

3 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Ef ég tók rétt eftir í síðasta "Silfri Egils" þættinum, þá hafði Svavar Gestsson, glottandi, orð á því: "Hvar væri núna, þessi meirihluti sem hefði fellt IceSave frumvarp ríkisstjórnarinnar?"

Þetta fólk kann ekki að skammast sín.

Mbkv, Björn bóndi   

Sigurbjörn Friðriksson, 11.1.2011 kl. 15:16

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég held reyndar að innst inni, blóðskammist Svavar sín. Hann er bara of mikill hræsnari til að sýna það opinberlega.

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.1.2011 kl. 15:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband