Og svo gagnrýna menn forsetann

Flokksdindlar ríkisstjórnarflokkanna, V-grænna og Samfylkingar, gagnrýna forseta Íslands fyrir að móðga "vinaþjóðir" okkar á Norðurlöndum með því að tala hreinskilningslega um að þau styðji Breta og Hollendinga í Icesave-deilunni.

Það eina sem Ólafur Ragnar gerir er að tala um hlutina eins og þeir eru.

Þessi frétt sem ég tengi þetta blogg við... og Þessi frétt einnig, segir allt sem segja þarf. Hversu skýrt þarf þetta að vera, svo "flokksdindlarnir" átti sig á þessu? Errm


mbl.is Lán frá Finnum háð Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Gunnar Th. Gunnarsson elskar Ólaf Ragnar Grímsson. Það gera nú margir Sjálfstæðismenn. Sem er gott, því sækjast sér um líkir. Svo segja Bláhersmennirnir Bessastaðabóndanum upp og byrja að sparka í hann innan tíðar, eins og þeir gerðu, sér til dundurs og ánægju, til skamms tíma. Þessar vanþroska unglingaástir taka á sig ólíklegustu myndir!

Björn Birgisson, 7.3.2010 kl. 21:36

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég viðurkenni það hreinskilningslega að ég hef ekki haft mikið álit á Ólafi Ragnari í gegnum tíðina, sérstaklega eftir að hann neitaði að skrifa undir fjölmiðlalögin vegna þrýstings frá Baugs-fjölmiðlaveldinu. Veldinu sem ól hann og verndaði í áraraðir.

-

En á ég að velta honum upp úr því, í sömu andránni og hann segir satt og rétt frá um Icesave-málið? ... Í sömu andránni og hann reynist okkar besti og verðmætasti málsvari í erlendum fjölmiðlum?

-

Nei, hann á auðvitað að njóta sannmælis fyrir það sem hann gerir vel, en þið "flokksdindlarnir" getið ekki unað honum þess. Sannleikurinn er ykkur greinilega lítils virði.

Gunnar Th. Gunnarsson, 7.3.2010 kl. 22:28

3 Smámynd: Björn Birgisson

Vertu sjálfur flokksdindill og elskaðu að elska eða hata forsetann, eftir vindáttinni hverju sinni. Ekki er ég í neinum flokki. Sama er mér um veðurspána! Og ekki er ég vindhani! Stórkostlega fyndið að sjá ykkur, íhaldsleppana, alla með sæðið í brókinni, vegna Ólafs Ragnars Grímssonar. Öðruvísi mér áður brá. Lengi skal mennina reyna. Lifðu heill!

Björn Birgisson, 7.3.2010 kl. 22:40

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Tekurðu enga afstöðu til gjörða forsetans í Icesavemálinu?

Gunnar Th. Gunnarsson, 7.3.2010 kl. 23:14

5 Smámynd: Björn Birgisson

Bara fyrir mig. Lifðu heill!

Björn Birgisson, 7.3.2010 kl. 23:26

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Svo þú ert einn af þeim=

Gunnar Th. Gunnarsson, 7.3.2010 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband