Sauðtryggir vinstrimenn

Alveg er hún með ólíkindum, tryggð vinstrimanna við málstað ríkisstjórnarinnar og Hollands og Bretlands í Icesave- málinu. Auðvitað eru þó ánægjulegar undantekningar á því.

Við hin höldum ró okkar og stólum á stjórnarandstöðuna og réttsýnt fólk í ríkjunum sem við eigum í deilu við. Sá stuðningur sem ýmsir erlendir fréttamenn, dálkahöfundar og faglærðir aðilar í lögfræði og fjármálageiranum sýna okkur, er mikils virði.


mbl.is Telegraph: Engin ástæða til að Íslendingar greiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Það er kominn tími til að vinstrimenn og þá sérstaklega samfylkingarfól fylki sér að baki þjóðinni sinni gegn Bretum og Hollendingum í staðinn fyrir að tala þeirra máli...

Guðmundur St Ragnarsson, 9.1.2010 kl. 18:05

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Nákvæmlega, Guðmundur

Gunnar Th. Gunnarsson, 9.1.2010 kl. 20:30

3 identicon

Þegar það hentar kæri bróðir þá er hægt að taka mark á "sérfræðingum".Mikið er nú Flokkurinn þinn og ég tala nú ekki um formanninn, sanfærandi í þessu máli. Allt á skakk og skjön.

Þeir sem bera ábyrgð gagnvart okkur almúganum segja núna: við borgum ekki, við borgum ekki. Þarna er smáborgurum vel lýst.

Vonandi heldur þú þér við efnið því það er svo gaman að lesa það sem þú skrifar.

Einar Gunnarssom (IP-tala skráð) 10.1.2010 kl. 03:11

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég er í hópi þeirra Íslendinga sem segja: "Við borgum ekki, nema það sem okkur ber samkvæmt lögum".

Ef það er lagalegur ágreiningur um það hvað okkur ber, þá vil ég fá úr þeim ágreiningi skorið

-

Þú ert í hópi þeirra sem styður málstað útlendinga gegn okkur. Hvernig í fjandanum stendur á því?

Gunnar Th. Gunnarsson, 10.1.2010 kl. 06:32

5 identicon

Já var það ekki. Þeir sem eru ekki með mér eru á móti mér. Ég hef nú ekki tjáð þér um afstöðu mína í þessu máli en samt getur þú fullyrt um mína afstöðu. Svo segir þú einnig "gegn okkur" Meinar þú þá þig og formann Sjálfstæðisflokksins sem nýlega hefur sagt að dómstólaleiðin sé ekki fær?

Einar gunnarsson (IP-tala skráð) 10.1.2010 kl. 17:12

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég er að tala sem Íslendingur og það eigum við öll að gera í þessu máli

Gunnar Th. Gunnarsson, 10.1.2010 kl. 20:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband